Friday, December 23, 2005

Gleðileg Jól !!

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár!
'Eg mun eyða aðfangadag í loftinu milli Dubai og Calicat, Indlandi. HHMM gaman, enn ég sé þá kanski jólasveinin á sleðanum á leiðini tilbaka til Norðurpólsins? Heyrst hefur að hann fari alltaf þessa leið til baka, á þessum tíma. 'Eg mun hugsa fallega til ykkar í Evrópu með jólamatin ykkar og jólaskrautið á meðan ég skelli í mig Indókarry rétt dagsins á sveitahótelinu í Cali, hihihi.
Annars er ég rosalega hress! og í jólaskapi. Lífið virðist allt vera ganga mér í hag í augnablikinu, og var Atlanta að lofa mér hlutabréfum í jólagjöf að verðmæti 50 000 kr. Það dettur nú ekki úr trjánum, enn það er líka ekki gjöf fyrr en ég sé hana HEHE.
Hafið það gott á jólunum og hugsið um öll börnin í heiminum sem ekki geta notið alls sem við getum og verum ærlega þakklát fyrir það að vera svona heppin.

1 Comments:

Blogger Kolla said...

Hae hae
Gledileg jol og eg vona ad thu hafid thad sem allra best yfir hatidarnar..
Kv Kolla

1:42 PM  

Post a Comment

<< Home