Monday, December 19, 2005

Vika í Jól!!

Bara vika í jólin og ég í sólbaði! það er ekki slæmt, enn ég væri samt til í smá snjó í viku og fá að sjá nokkra jólasveina! Þó maður sjái jólasveina í vinnuni á hverjum degi haha.
Héðan er allt gott að frétta, nóg að gera og við erum að fá enn aðra vél í Indland Hajj! Svo var ég að fá fréttir að Visa-ið til Saudi væri gengið í gegn. Þannig að ég býst við því að vera komin til Jeddah fyrir Jól. 'Eg vildi samt frekar geta verið í Dubai eða Kalkuta yfir jólin, þar eru allavega jólatré og smá jólafílingur. Enn það kemur bara í ljós, maður tekur bara 1 dag í einu og planar bara ekkert of langt fram í tíman. Rock on Santaclaus!!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home