Tuesday, February 28, 2006

Sveinsprófið!

'Eg fékk frábærar fréttir áðan, Náði öllum hlutum í Sveinsprófinu!! :)
Nú þarf maður bara að bíða eftir nýja skirteininu, með B 747 classic. hihi
Svo fer maður að skoða vinnur og íbúðir :=) fullt af jákvæðum hlutum að gerast.
28.feb= happadagurin mikli.
Gleðilegt Vor og óska ég ykkur allri þeirri gæfu sem þið eigið skilið.:)

Sunday, February 26, 2006

'Island í dag.

Þessi vika er búin að vera svolítið stressandi, ég er búin að vera á undirbúnings námskeiði fyrir Sveinspróf, sem ég var að ljúka fyrir 30 min síðan., Pjjúúu
Þvílikt ánægður að vera búin með þennan áfanga! Nú þarf maður bara að fara hugsa um framtíðina og kaupa sér íbúð.
'Eg tók lika eftir því að vorið er komið, heyrði í Lóu syngja fyrir utan gluggan, þegar ég var í prófinu, ótrúlega vinalegt hljóð.
'Island er bara ágætis land! ég held að ég sé bara farin að sakna þess eftir öll þessi ár. Maður er búin að búa erlendis í 10 ár, alltaf á flakkinu:).
Það er samt ekki orðið nógu heitt fyrir mig núna, þannig að ég er að spá í að skella mér í sólina:) ég veit bara ekki alveg hvert?
'Eg er allavega farin út að borða í kvöld, einhvern geggjaðan Dinner!! :)

Saturday, February 18, 2006

Frí !!!

Fríið langa! loksins komin í frí!
Það er ótrúlega gott að vera komin heim, og geta slappað af og notið þess að gera ekki neitt nema láta sér líða vel!
Benni litli mundi sem betur fer eftir Pabba sínum og er buin að vera frábær! Við erum einmitt núna að horfa á Ljóna teiknimynd og enn á náttfötunum :)
Svo þegar við höfum nennt að klæða okkur þá ætlum við að heimsækja Oliver bróðir og Breka.
Það væri lika gaman að fara versla bíla! okkur Benna finnst það nú ekki leiðinlegt..hehe
Viska dagsins er" vertu jafn góður við sjálfan þig eins og þú ert við barnið þitt!" :)

Sunday, February 12, 2006

Tímamót!

Það er ótrúlega margt búið að gerast síðustu 4 daga.
Allt byrjaði það með að, Hóp uppsagnir Atlanta komu með fallegu E-maili þann 8 feb.
Sjokk og ótti, þyrmdi yfir mannskapin og flestum þótti ekki gott að vera fastur einhverstaðar í rassgati, frá fjölskyldu og vinum, síðustu 3 mánuði og vita svo allt í einu að eftir viku værir maður orðin launalaus!!
Enn svona er lífið, upp og niður. 'Eg persónulega var búin að heyra af þessu lengi, enn maður hugsar oft, kanski ekki ég?
Enn svo gott var það ekki, ég fékk Dreka E-mailið mikla og allan þann ótta og vanlíðan sem því fylgir. Það er alltaf óþægilegt að vita ekki hvað er framundan.
Sem betur fer þá virðist vera nóg að vinnu að hafa, kanski ekki á íslandi enn um allan heim, maður er búin að fá 4 atvinnu tilboð á 4 dögum. Það lætur manni líða aðeins betur og pumpar aðeins upp egóið eftir þennan skell.
'Eg ætla samt að byrja á því að taka mér mánaðar frí!! Marg verskuldað!!
Knúsa krakkana mína! og hitta fjölskylduna!
'Eg og Rabbi fórum svo á Applebees Restaurant í gær og fengum okkur snildar steikur eftir erfiðan vinnudag, enn það merkilega við dagin var að Apple pie-ið með Vanillu ís í desert er Orgasmik gott!! 'Otrúlega geggjað!! Einhvern vegin eftir að fá þessa yndislegu Applepie, þá lagaðist allt! og allt varð yndislegt og gott aftur! Allar leiðinlegar hugsanir hurfu með hverjum bitanum af pie-inu :) hihihi
Þetta er sem sagt ráð vikunar, Ef þú ert eitthvað þungur og átt erfitt! Farðu þá og fáðu þér heita Applepie með Vanillu ís!!!!
Klikkar ekki!! Þú munt brosa í gegnum tárin. :) hehehe
Vertu í samband! :)

Wednesday, February 01, 2006

Einn dagur í einu!

Nú ganga hrikalegar sögur um fyrirtækið að það verði sagt upp 40 flugvirkjum?
Þetta eru ekki beint skemtilegustu fréttir sem maður hefur fengið, sérstaklega þegar maður er fastur í Jeddah. Enn fréttirnar eru samt að leggjast betur og betur í mig, bara hugsa jákvætt, maður getur bara breyt því sem maður getur breyt, ekki meir.
Svo er önnur hugsun líka algeng í svona aðstöðu, Afhverju ég? Enn Afhverju ekki ég?? 'Eg er búin að vera velta þessu svolítið fyrir mér og ég verð að segja það að margir eru í verri aðstöðu enn ég og eiga erfitt með að komast í vinnu annarstaðar ef þeim yrði sagt upp. Þannig að ég vona bara að þeir velji vel úr hópnum og að allir spjari sig úr þessum uppsagnar tímamótum.
Það má ekki gleyma því heldur að það er fullt af vinnu þarna úti þessum stóra heimi, bara skoða í kringum sig. Þó auðvitað að best væri að vera áfram hjá Atlanta! maður fílar mannskapin í botn og þetta er orðið eins og fjölskylda manns.
Dagur í einu er setning vikunar!
Svo segi ég bara Bring it on!! ;)